Skrifað af Ómar Daði Sigurðsson
Miðvikudagur, 07. Janúar 2009 05:17
Slökkt á DC tengipunkt Deiling.is.
Stjórn félagsins tók þá ákvörðun að slökkva á DeilingDC++ tengipunkti sínum í gær og var ástæðan sú að ekki var sýnt þessu nægur áhugi hjá notendum, en ekki er verið að tala um þá sem voru þarna inni allan sólahringinn frá opnun þessa þjónustu, málið hafi bara verið að prufa að opna þetta og sjá hvað skeður en þar sem þetta er jú allt greitt úr vasa stjórnenda fyrir utan viðbót frá notendum sem kemur með styrkjum þá hafa stjórnendur ekki nægan tíma til að sinna DC++ og torrent-síðu.
En ástandið ætti ekki að valda leiðindum til lengdar þar sem TheVikingBay hefur opnað sinn tengipunkt, slóðin á tengipunktinn er dchub://dc.thevikingbay.org:2412 sem keyrður er á linux forritinu Verlihub, ekki er vitað hvernig tengingu tengipunkturinn er keyrður á en það kemur í ljós von bráðar.
Til þess að tengjast DC tengipunkt TheVikingBay þarftu að hafa ApexDC.
Skrifað af Ómar Daði Sigurðsson
Miðvikudagur, 07. Janúar 2009 04:36
Breytt tímasetning í dag í máli Istorrent.
Vitnað í vef blog.istorrent.is athugið þetta er ritað í gær 6 janúar.
"Tímasetningu réttarhaldanna á morgun, 7. janúar, hefur verið breytt. Dagskránni var seinkað um 90 mínútur og ættu því réttarhöldin að vera í gangi frá klukkan 10:30 og til 15:30 (fyrir utan hádegishlé).
Eins og áður var getið verður gefið út ágrip af atburðum dagsins þegar það verður tilbúið."
Skrifað af Ómar Daði Sigurðsson
Þriðjudagur, 06. Janúar 2009 13:48
Eins og greint er frá í fréttblaðinu í dag þann 6. janúar ætlar Páll Óskar Hjálmtýsson að bera vitni í Istorrent málinu, greinina má lesa í heildsinni hér fyrir neðan.
NetFrelsi mun fylgjast með málinu á morgun.
Málshöfðun Smáís gegn IsTorrent ehf. og framkvæmdastjóra þess, Svavari Lútherssyni, verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness á morgun. Verjandi Svavars hefur fengið Pál Óskar Hjálmtýsson til að bera vitni í málinu.
"Ég er ekki að fara að verja gjörðir hans. Ég mæti sem vitni til að varpa ljósi á samskipti mín við hann," segir Páll Óskar sem fyrir rúmu ári blótaði Torrent.is í sand og ösku eftir að plata hans, Allt fyrir ástina, var sett þangað inn.
"Það er allt á hreinu milli mín og hans," segir Palli um samskipti sín við Svavar. "Tíu mínútum eftir að ég sendi honum tilkynningu um að Allt fyrir ástina væri þarna inni var búið að taka hana út. Það sýnir og sannar að það er ekkert mál að fjarlægja höfundarréttarvarið efni af þessum síðum."
Lögbann var sett á Torrent.is 19. nóvember 2007 eftir að Smáís, samtök myndrétthafa á Íslandi, höfðaði mál gegn síðunni. Á henni gátu notendur hlaðið niður innlendu og erlendu tónlistar- og myndefni án endurgjalds. Vakti starfsemin spurningar um brot á höfundarréttarlögum, enda hafði hún áhrif á lífsviðurværi fjölmargra listamanna á borð við Pál Óskar.
"Þessar Torrent-síður eru ekki að fara neitt og útgefendur ekki heldur. Þess vegna verðum við að ná sáttum og finna einhverja lausn," segir hann. "Mér finnst hið besta mál að smáskífur og tónlistarmyndbönd séu inni á þessum síðum ókeypis til dreifingar. Það sem ég vil ekki sjá er að stóra afurðin sem á að skila inn kostnaðinum við að búa til plötuna sé inni á síðunum."
Niðurstaðan í dómsmálinu gæti haft fordæmisgildi varðandi rekstur annarra skráaskiptasíðna hér á landi á borð við Thevikingbay.org sem var stofnuð tveimur vikum eftir að Torrent.is var lögð niður. Þar hefur íslenskt efni notið vinsælda, meðal annars Silfursafn Páls Óskars, sem hefur verið sótt þangað nokkur þúsund sinnum. "Sá sem "uplódar" (setur efnið inn) er sá brotlegi. Ég ætti að senda þeim náunga reikninga fyrir þessum eintökum sem er búið að "dánlóda"," segir Palli.
Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri Smáís, segir að fyrir rétti á morgun verði í fyrsta sinn tekið á málinu efnislega hvað höfundarrétt varðar. "Um leið og þetta mál fer eins og við reiknum fastlega með þá förum við bara í næsta mann. Mennirnir sem eru á bakvið þetta búa á Íslandi og það er auðvelt að fara á eftir þeim."
Svavar Lúthersson telur sig eiga helmingsmöguleika á sigri. "Þetta mál hefur mikið fordæmisgildi en það er erfitt að vita hvað dómararnir eru að hugsa," segir Svavar og vonar að málinu ljúki nú eftir þrettán og hálfs mánaðar baráttu og mikinn kostnað. "Þetta er búið að fara í fleiri milljónir sem ég vona að ég fái til baka."
Skrifað af Ómar Daði Sigurðsson
Þriðjudagur, 06. Janúar 2009 08:43
Netfrelsi hefur ákveðið að leitast við almenning sem hefur áhuga á að skrifa fréttir á vefsíðu þessa um internet heiminn á Íslandi í dag.
Skilyrði við þessa umsókn er að skrifa fréttir á vefsíðuna og að kunna stafsetningu í Íslensku og geta skrifað vel, umsækjandi þarf að vera orðin sjálfráða. (18ára).
Umsóknir má senda á mitt persónulega netfang
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Fyrirfram þakkir.
Skrifað af Ómar Daði Sigurðsson
Þriðjudagur, 06. Janúar 2009 04:45
Afritað af vef rTorrent.
"Sælir notendur góðir, mér langar rosalega að geta haldið uppi þessari síðu fyrir ykkur en þannig er mál með vexti að fátækur námsmaður eins og ég á enga peninga til að halda uppi svona vefsíðu og eyði mjög miklum tíma í vefsíðuna til að fara yfir lýsingar, spjallborðið og erum við stjórnendur með síðuna í allveg svona 50-80% vinnu án launa...
Það sem ég er að reyna segja að mér langar að byggja upp góðann sjóð fyrir næstu 3-4Mánuði þá erum við að tala um góða upphæð uppá 100.000kr ef reiknað ef að hver mánuður sé svona um 25þúsund mánaðarlega en þessi tala fer upp og niður kostar um 15-25þús á mánuði að halda uppi vefnum og aðrar útborganir eins og uppfæringar á vélbúnaði og annar kostanður fyrir vefinn.."
Til að styrkja rTorrent.net má leggja inn jákvæða upphæð inn á reikning 1145-05-442497 kt. 141192-2729.
Skrifað af Ómar Daði Sigurðsson
Þriðjudagur, 06. Janúar 2009 04:38
Miðvikudaginn 7. Janúar 2009 verður aðalmeðferð Istorrent í annari umferð Istorrents-málsins. þingið mun vera í sal 1 og hefst það kl. 9:00 og verður það til 14:00 sem er áætlaður tími, þingið mun vera opið og getur því almenningur mætt á þinghaldið á meðan pláss leyfir. Dómari mun ásamt meðdómendum ígrunda málavexti og kveða upp dóm þegar niðurstaða liggur fyrir (líklegast ekki samdægurs).
Svavar varar við að þingið mun innihalda mikið lögfræðiblaður.
Til að styrkja Istorrent má leggja inn jákvæða upphæð inn á rn. 0135-26-072153 kt. 670807-2150.
Velkomin/n á Netfresli.is
Skrifað af Ómar Daði Sigurðsson
Mánudagur, 05. Janúar 2009 19:14
Velkomin á vef Netfrelsis.
Vonum að flestir skrái sig og taki þátt í baráttu netverja á Íslandi.
Félagið var stofnað 04/01/2009
Tilgangur félagsins er að veita almenningi upplýsingar um hvað er í gangi í netheiminum á Íslandi, félagið setur sér það markmið að reyna aðstoða hvern og einn sem kann að verða að brotið sé á rétt þeirra á netinu, félagið kemur til með að fylgjast með málaferlum Istorrent og kafa ofan í saumana á því ef aðstæður leifa, félagið hefur lögheimili í Skipholti 50b. á 3 hæð, félagið er stofnað af Ómari Daði Sigurðssyni og Fannari Hafsteinssyni, en við rekum nú þegar vefsetrið og afþreyingarvefinn Deiling.is, öllum vefsíðum á netinu sem hafa áhuga á að koma í félagið netfrelsi.is geta sent okkur tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
til að skrá sitt félag í félagið netfrelsi.
Vonum að flestir skrái sig!
Kær kveðja Ómar Daði Sigurðsson.